Jul 17, 2008

Kjúklingaréttur með grænmeti og karrý/kókosmjólkursósu

Hef útbúið þennan rétt nokkrum sinnum, og hann er alltaf góður:-)
Það er hægt að útbúa hann fyrir allt 3-4 manneskjur en ég hef útbúið skammt fyrir 1-2, og miða eftirfarandi uppskrift við það.
Ef þið eldið fyrir fleiri þá er uppskrift tvöfölduð:-)
Það er misjafnt hvaða grænmeti ég set útí, en ég skrifa hér það sem ég hef notað undanfarin skipti..

Hráefni:
Niðurskornir kjúklingarstrimlar(fást tilbúnir í matarbúð),set c.a. helminginn af pakkanum.
1/2 - 1 paprika, litir að eigin vali, skorin í litla bita
1/2- 1 gulrót, afhýdd og skorin í litla bita
1/2 kúrbítur, afhýddur og skorin í lítlar sneiðar
1 hvítlauksgeiri, afhýddur og skorinn smátt
1 laukgeiri, afhýddur og skorinn smátt
2 ananassneiðar, skornar í litla bita
svolítið af bambus (fæst niðurskorinn í litlum dósum)
handfylli af saltablöndu(ristaðar hnetur og fræ)

Matreiðsla
Hráefnið þurrsteikt þar til það hefur brúnast.

Þá er hellt 1/2 dós af Creamy Curry með jógúrt og mildu karrýbragði frá Knorr á pönnuna, ásamt 1/2 dós af léttri kókósmjólk (lítil dós), blandað saman við grænmetið og kjötið og látið malla þar til það fer að sjóða og hitna vel.
Ég blandaði líka svolitlu af soðnum hrísgrjónum út í réttinn seinast þegar ég eldaði hann og það var líka gott:-)

Ég hef borið þetta fram á þrenns konar máta:
1. Hitað tortillarkökur og svo er rétturinn settur á kökuna og rúllað saman.
2. Rétturinn settur á brauðsneið
3. Rétturinn borðaður eintómur.

Verði ykkur að góðu;-)

No comments: