Jul 24, 2008

Ostabrauð

Ég smakkaði þetta gómsæta ostabrauð hjá Láru þegar ég fór í heimsókn til Danmerkur í sumar:-)
Ég fylgdist með þegar Lára var að útbúa réttinn og prófaði svo að elda þetta þegar ég kom heim, en það getur verið að ég hafi breytt einhverju, því ég mundi ekki alveg í smáatriðum;-)

En þetta er ein útfærslan og hægt að hafa allskonar álegg og prófa sig áfram:-)

Uppskrift að einum skammti:

Hráefni:
Ein ferköntuð brauðsneið, t.d speltbrauð, fjölkornabrauð, eða orkubrauð...
rautt pestó
smjör
aspas
ostur

Aðferð:
Brauðsneiðin er fyrst smurð með örlitlu smjöri, síðan er rauðu pestói smurt yfir alla brauðsneiðina. Svo er aspasinum raðað á brauðið og að lokum er osti dreift yfir brauðið, annaðhvort er hægt að rífa hann niður og dreifa yfir, eða setja heila stóra ostsneið:-)

Brauðsneiðin er svo hituð í ofninum á blástursstillingu á svona 150-170° í 10 mínútur eða þar til osturinn er gullinn á lit, eða við það að bráðna:-)
Eldunartíminn fer líka eftir því hvort ofninn hafi verið forhitaður...
sem getur líka verið ágætt..

Bragðgóður og léttur réttur sem tekur stutta stund að útbúa:-)

No comments: