Apr 24, 2011

Hollir orkubitar

200 g akasíuhunang
5 msk. Ólífuolía
2 tsk. Vanilludropar
2 msk. Kakó
80 gr. Haframjöl
80 gr. Tröllahafrar
40 gr. Sesamfræ
50 gr. Hnetur (pekan-, hersil-, valhnetur eða…)
½ - 1 tsk. Múskat
150 gr þurrkaðir ávextir t.d. trönuber, rúsínur, aprikósur, sveskjur ein
tegund eða blanda saman mismunandi tegundum
150 gr. Suðusúkkulaði eða annað dökkt súkkulaði, gróft saxað.

1. Hita hunangið t.d. í örbylgjuofni svo það verði fljótandi.
2. Blanda hunangi, olíu, vanilludropum og kakói saman í skál.
3. Blanda öðrum hráefnum vel saman í annarri skál.
4. Hræra eða hnoða öllu vel saman.
5. Klæða form með bökunarpappír.
6. Baka í ofni í 25 mínútur í 180 gráðu heitum ofni.
7. Kæla og skera í litla bita.

No comments: