Hráefni:
1 camenbertostur
1 paprikuostur
1 piparostur
½- 1 paprika.
Vínber, magn eftir smekk.
1/2 dós majónes
1 dós sýrður rjómi.
Aðferð:
Ostarnir og paprikan skorin niður í litla búta og vínberin skorin til helminga. Sýrði rjóminn og majónesið er hrært saman, ostar, paprika og vínber sett út í og öllu blandað vel saman.
Látið standa í ísskáp í c.a. korter og berið síðan fram með Ritzkexi.
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment