Apr 24, 2011

Hrákaka

Hráefni:
500gr döðlur, soðnar á vægum hita og maukaðar.
60-70gr kokósfeiti.
2 maukaðir bananar.
Ég notaði töfrasprotann til að mixa saman, en á að vera hægt að stappa allt saman.
1 bolli haframjöl.
50-60gr 70% súkkulaði (ég setti um 100gr) saxað í sæmilega stóra bita.
Hnetur og heslihnetur að vild

ég set þetta í ísskáp yfir nótt, en það er líka hægt að skella kökunni í frysti í 2-3 tíma...

Ofan á, sett á eftir kæliskápinn eða frystimeðferðina:
Kókosflögur brúnaðar í sykri/hrásykri
Jarðaber/bláber/hindber/bananar eða eitthvað gott
Ég setti líka smá af súkkulaðibitunum ofan á.

Sett í kæliskáp eða frysti þar til borið fram.
Gott að hafa þeyttan rjóma með..

Njótið!

No comments: