Grunnhráefni:
4 dl gróft spelt
1/2 dl sojamjöl
3 tsk vínsteinslyftiduft (á ensku heitir það cream of tatar)
2 dl ab-mjólk (hrein)
hnetur, möndlur, fræ eða ber
ég hef notað
t.d. hnetur, möndlur, rúsínur, fræblandu, gojiber, döðlur, trönuber.
allt eftir því hvað er til og hvernig stuði ég er í :-)
best er að skera döðlur, hnetur og möndlur í smærri bita..
Það má sleppa sojamjölinu og nota í staðinn meira spelt eða kókosmjöl.
Ég nota alltaf ab-mjólk en það má örugglega nota súrmjólk í staðinn ef hin er ekki til.
Það er um að gera að prófa sig áfram:-)
Aðferð:
Hitið ofninn á 200 gráðum á blæstri.
Setjið allt hráefnið í skál, hellið ab-mjólkinni síðast..
Best er að hræra sem minnst í deiginu, hrærið í höndum eða með sleif, c.a. 10 hreyfingar eða þar til deigið hangir saman.
Smyrjið bökunar eða brauðform vel að innan með smjörlíki, og bakið við 200 gráður , blástur í 20-25 mínútur.
Mér finnst best að smyrja með smjörlíki því þá festist ekki brauðið við
formin, nema notað sé sílikonform þá er fínt að nota ólífuolíu til að
smyrja.
Setjið brauðið á skurðbretti og breiðið rakt stykki yfir brauðið til að kæla það og mýkja..
Verði ykkur að góðu;-)
Ég gerði fyrst svona brauðbollur, sama uppskrift, en breytti því næst í heilt brauð þegar ég bakaði þetta í næsta skiptið, fannst ég fá meira magn og betri nýtingu á hráefni...
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment