Jan 25, 2013

Maísbrauð


Hráefni:
175 gr gróft spelt
275 gr, maísmjöl
2 tsk vínsteinslyftiduft
1 dl ólífuolía
4 stk egg
250 ml ab-mjólk(hrein)
nokkrar döðlur
1 msk timjan(má sleppa)

Aðferð:
Hitið ofninn í 200 gráður, blástur.
Smyrjið bökunarformið vel að innan með smjörlíki.
Mér finnst best að smyrja með smjörlíki því þá festist ekki brauðið við formin, nema notað sé sílikonform þá er fínt að nota ólífuolíu til að smyrja.
Setjið þurrefnin og saxaðar döðlur í skál og blandið vel saman.
Þeytið eggin og bætið þeim útí skálina ásamt ab-mjólk og ólífuolíu og hrærið vel saman.
Bakið í 200 gráðu heitum ofni- blástur í 20-25 mín.
Setið brauðið á skurðarbretti og setið rakt stykki yfir til að kæla og mýkja.
borðið með smjöri og osti:-)

No comments: